Hönnunar- og prjónasamkeppni Prjónagleðinnar 2022

Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi dagana 10. - 12. júní 2022 og að venju er blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. Að þessu sinni gengur samkeppnin út að að hanna og prjóna lambhúshettu á fullorðinn.

Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að vera handprjónuð úr íslenskri ull. Óskað er eftir því að sagan á bak við hugmynd og hönnun fylgi með þegar verkinu er skilað inn í keppnina.

Dómnefnd velur þrjú efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2022, þar sem verðlaun verða afhent. Styrktaraðilar keppninnar eru Ístex, Tundra, VatnsnesYarn og Rúnalist sem gefa glæsileg verðlaun. Lambhúshetturnar sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur.

Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir svana@textilmidstod.is og þær má einnig finna á www.textilmidstod.is

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir