Hópslysaæfing í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi
Á morgun laugardaginn 15. október standa almannavarnir í Húnavatnssýslum og almannavarnardeild ríkislögreglustjóra fyrir æfingu þar sem æfð verða viðbrögð og samvinna viðbragðsaðila við hópslysi. Allir viðbragðsaðilar í umdæminu taka þátt í æfingunni með einum eða öðrum hætti.
Æfingin felst í því að „búin er til slysstaður“ á Víðidalsvegi nr. 715 skammt frá vegamótunum, sem eru norðan brúar yfir Víðidalsá. Þar hafa „slasast“ um 40 manns í umferðarslysi. Miðstöð æfingarinnar verður í Víðihlíð og af því leiðir að mikil umferð neyðarbifreiða í forgangsakstri verður á milli slysstaðarins og Víðihlíðar á meðan á æfingunni stendur.
Í þessari viku hefur staðið yfir fræðsla vegna æfingarinnar og boðunaræfing var framkvæmd að morgni föstudagsins 14. október.
Í æfingastjórn sitja fulltrúar lögreglu, sjúkraflutninga og brunavarna í umdæminu auk fulltrúa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Ráðgjafar koma frá Rauða krossinum, Landspítala, ISAVIA, Neyðarlínunni og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
/Fréttatilkynning