Horaður búfénaður í mykju upp að hnjám

​Dýraverndarsambandi Íslands (DÍS) hefur borist ábending um búfénað í alvarlegum vanhöldum í Skagafirði og segir á heimasíðu samtakanna að tilkynningin hafi verið send til DÍS þar sem svo virðist sem Matvælastofnun (MAST) hafi ekki brugðist við fyrri tilkynningum um ástand og aðbúnað þessara dýra.

Myndir hafa verið birtar í fjölmiðlum sem sýna ástand og aðbúnað dýranna sem um ræðir mjög slæmar. „Búfénaður er horaður og stendur skítugur í mykju upp að hnjám. Það var örþrifaráð tilkynnanda að hafa samband við DÍS vegna ástandsins og lýsa þessum aðbúnaði dýranna, í von um að það verði til þess að hreyfa við málinu.

DÍS hafði samband við Matvælastofnun í síðustu viku vegna málsins og óskaði tafarlausra úrbóta. Svör stofnunarinnar voru þau að farið hefði verið í eftirlit á þessum stað í nóvember sl. vegna ábendingar. Þá hafi engin frávik verið skráð varðandi aðbúnað dýranna. Sú ábending sem send hefur verið til DÍS á hins vegar við um aðbúnað dýranna viku eftir þá eftirlitsheimsókn MAST. Aðbúnaður dýranna var einnig metinn án frávika í byrjun desember þegar MAST fór í aðra eftirlitsheimsókn.

Dýrahald eins og lýst er hér á engan rétt á sér. Matvælastofnun er sú stofnun á Íslandi sem lögum samkvæmt ber að sjá til þess að farið sé að lögum um velferð dýra,“ segir í tilkynningu DÍS sem farið hefur fram á tafarlausar aðgerðir af hálfu yfirvalda í málinu.

Myndir og myndband af ástandi dýranna má sjá í frétt Vísis af málinu HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir