Hörður og Djarfur komu, sáu og sigruðu

Keppendur í unglingaflokki. Mynd: neisti.net
Keppendur í unglingaflokki. Mynd: neisti.net

Síðasta mótið í mótaröð Hestamannafélagsins Neista í Austur-Húnavatnssýslu var haldið í gærkvöldi og tókst með miklum ágætum, að því er sagt er á heimasíðu félagsins.

„Gaman var að sjá nýliða í unglingahópnum og vonandi koma þau til með að halda áfram keppni í sumar og næsta vetur,“ segir ennfremur á vefsíðu Neista. Í opna flokknum var hart barist en Hörður og Djarfur komu, sáu og sigruðu með flottri sýningu. 

Neisti bauð uppá grillaðar pylsur í hléinu, sem gerð voru góð skil. Á heimasíðu sinni segir Neisti að þetta hafi verið gott kvöld og mótið velheppnað og vill félagið jafnframt koma á framfæri þökkum til allra sem komu að þessari mótaröð félagsins á einn eða annan hátt.

Úrslit mótsins urðu sem hér segir:

Unglingar:

1. Aron Freyr Sigurðsson og Hlynur frá Haukatungu 5,8 / 6,3
2. Lara Margrét Jónsdóttir og Króna frá Hofi 5,8 / 6,2
3. Una Ósk Guðmundsdóttir og Bikar 5,3 / 5,5
4. Sunna Margrét Ólafsdóttir og Píla frá Sveinsstöðum 5,5  / 5,0
5. Stefanía Hrönn Sigurðardóttir og Miðill frá Kistufelli 5,2 / 4,5

Opinn flokkur:

1. Hörður Ríkharðsson og Djarfur frá Helguhvammi II 6,2 / 6,8
2. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal 6,3 / 6,7
3. Rúnar Örn Guðmundsson og Kasper frá Blönduósi 5,8 / 6,5
4. Magnús Ólafsson og Heilladís frá Sveinsstöðum 6,2 / 6,1
5. Jón Gíslason og Keisari frá Hofi 5,8 / 5,7
6. Ólafur Magnússon og Garri frá Sveinsstöðum 5,8 / 5,7
7. Víðir Kristjánsson og Glanni frá Brekknakoti 6,0 / 5,7 

Skeið:

Unglingaflokkur:
1. Lara Margrét Jónsdóttir

Opinn flokkur:

1. Ólafur Magnússon og Abel frá Sveinsstöðum
2. Kristín Jósteinsdóttir og Hrappur frá Sveinsstöðum
3. Davíð Jónsson og Halla frá Skúfsstöðum
4. Ragnhildur Haraldsdóttir og Steina frá Nykhóli

 

Fleiri fréttir