Hraðatakmarkanir á Skagaströnd eru 35 km/klst

Ákveðið hefur verið að takmarka hraða ökutækja á Skagaströnd við 35 km. Lögin taka þegar gildi og eru numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga um umferð á Skagaströnd sem kunna að brjóta í bága við nýju lögin.

 

Á vef Skagastrandar er sagt frá því að samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og fenginni tillögu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar, er með hliðsjón af 4. mgr. 37. gr. umferðarlaga, staðfest að hámarkshraði ökutækja innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins skuli framvegis vera 35 km/klst.

Fleiri fréttir