Hreindís Ylfa heldur útgáfutónleika
Hreindís Ylva Garðarsdóttir var að gefa út geisladiskinn Á góðri stund. Þar syngur hún 13 dægurlagaperlur söngkonunnar Erlu Þorsteinsdóttur frá Sauðárkróki.
Þar má nefna lög eins og Þrek og tár, Draumur fangans, Litli tónlistarmaðurinn, Bergmálsharpan og fleiri. Geisladiskinn má nálgast í Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki og í Varmahlíð. En þess má geta að Menningarnefnd Kaupfélags Skagfirðinga og Menningarmálanefnd Norðurlands Vestra voru styrktaraðilar að þessari útgáfu.
Hreindís Ylfa og hljómsveit hennar verða svo með útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi næstkomandi sunnudag, þann 4. september. Miða á tónleikana er hægt fá í forsölu á salurinn.is og midi.is.