Hrekkjavökupartý í Blönduskóla

„Halloween“partý var haldið í unglingadeild Blönduskóla síðast liðinn föstudag. Þangað komu nemendur í búningum og með skrautlegar kökur, auk þess sem gangurinn á efri hæð nýja skóla var skreyttur í takti við tilefnið og nemendur lásu  „hryllingssögur“ sem þeir höfðu samið í ensku.

Hluti af markmiðum enskukennslunnar í Blönduskóla er að kynna nemendum menningu enskumælandi landa og fellur „Halloween“ klárlega í þann flokk.

Fleiri fréttir