Hreppsnefndarfundur Húnavatnshrepps
Hreppsnefndarfundur Húnavatnshrepps verður haldin miðvikudaginn 2. maí kl. 13:00. Þetta verður 120. fundur samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins.
Á dagskrá fundarins verður m.a. seinni umræða um ársreikning Húnavatnshrepps 2011 og skýrsla sveitarstjóra. Einnig verður farið yfir fundargerðir frá fræðslunefnd, jafnréttisnefnd, heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra, vatnasvæðisnefnd á vatnasvæði 1, aðalfundi Ferðamálafélags A-Hún og Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál.
Jafnframt verður farið yfir bréf sem hafa borist hreppsnefndinni. Nánar um dagskránna má lesa hér á heimasíðu Húnavatnshrepps.