Hressandi Húnavaka hefst í dag
Hinn 10 ára gamli Húni.is segir frá því að Húnavakan, hin árlega fjölskyldu- og menningarhátíð Blönduósingar hefst í dag og stendur yfir helgina. Á Húnavöku verður að venju ýmislegt til skemmtunar og er dagskráin sérlega fjölbreytt og skemmtileg þannig að allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi.
Í dag verður m.a. hægt að fara á bókamarkað í Héraðsbókasafninu, diskósund í sundlauginni, skemmtidagskrá í Félagsheimilinu og 80´s ball með Sigga Hlö í Félagsheimilinu.
Á morgun verður Flugklúbbur Blönduóss með útsýnisflug, Heimilisiðnaðarsafnið verður opið, keppt í Míkróhúninum, Blönduhlaup USAH, knattspyrnuleikur, fjölskylduskemmtun á Bæjartorginu, kvöldvaka í Fagrahvammi, stórdansleikur í íþróttahúsinu og margt fleira.
Sunnudagurinn verður heldur rólegri en þá fer fram Opna Gámaþjónustumótið í golfi, Heimilisiðnaðarsafnið verður opið og spurningakeppni barna í Hafíssetrinu.
Sjá nánar á Húna >