Hreyfingin hefur sótt um aðild að Dögun
Á morgun miðvikudagskvöldið 25. apríl kl. 20.00 verður haldinn félagsfundur í Dögun og aðildarumsókn Hreyfingarinnar tekin fyrir. Þá verður einnig brotið blað í sögu íslenskra stjórnmála þegar slembivalið verður í stöður framkvæmaráðs- og úrskurðarnefndarmanna.
Á heimasíðu Lýðræðisfélagsins Öldu segir um slembival: „Slembival eða hlutkesti á fulltrúum er lýðræðisleg aðferð sem Aþeningar á 5. öld fyrir Krist nýttu. Á síðari tímum hefur slembival verið notað með góðum árangri í Bresku Kólumbíu í Kanada, en árið 2004 var ákveðið að gera breytingar á kosningalöggjöfinni og farin sú leið að skipa þing með slembivöldum fulltrúum. Valdir voru í handahófi 160 borgarar úr þjóðskrá (með jöfnu kynjahlutfalli), sem komu saman og unnu tillögu um breytingar sem síðan voru lagðar fyrir í fylkiskosningu. Lýðræðisfélagið Alda mælir með því að slembival verði nýtt innan lýðræðislegs stjórnmálaflokks, þar sem að hlutkesti tryggir ákveðið pólitískt jafnrétti. Kostirnir felast fyrst og fremst í því að öllum flokksmeðlimum eru veittir jafnir möguleika á því að vera valdir sem fulltrúar. Slembival hentar því vel til þess að jafna hlut kynjanna eða annarra hópa. Það hefur einnig sýnt sig að slembivaldir fulltrúar eru líklegri til þess að taka ákvarðanir sem varða almannahag, þar sem að þeir sækjast síður í embætti að hagsmunaástæðum. Stjórnmál varða málefni allra og því rétt að allir komi að þeim.“