Hringdi skólann inn í bókstaflegri merkingu
Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst hringdi skólann inn í bókstaflegri merkingu á Bifröst í dag 2. september við athöfn í Hriflu. Vilhjálmur bauð nýja nemendur velkomna, minnti þá á mikilvægi þekkingar og sagðist hlakka til að takast á við komandi vetur með þeim. Við setninguna greindi hann frá ýmsu nýju sem væri framundan hjá Bifröst á skólaárinu meðfram hefðbundnu skólastarfi. Nefndi hann sérstaklega verkefnið „Hækkun menntunarstigs í Norðvesturkjördæmi“ undir forystu Háskólans á Bifröst, en verkefnið er á vegum Menntamálaráðuneytis.
Þá minntist hann einnig á nemendaverkefni þar sem nemendur á Bifröst vinna rekstraráætlanir í samvinnu við fyrirtæki á Vesturlandi. Með þessu verkefni mun skólinn tengja sig enn meira við atvinnulífið en gert er. Þá eru uppi áform um að setja nýja braut af stað við Háskólann á Bifröst sem er matvælarekstrarfræði og er áætlað að hefja kennslu við hana haustið 2014. Undirbúningur er hafinn að opnun sýningu um íslenskt atvinnulíf á Bifröst, áætlað er að sýningin verði opnuð næsta sumar. Markmiðið með sýningunni er að fá fólk inn á staðinn og skoða sýninguna, kynna þeim skólann og aðstöðuna. Vilhjálmur sagði að bjart væri framundan hjá Háskólanum á Bifröst og að metnaður, kraftur og frumkvöðlaandi einkenndi starf skólans.
Að lokum fór bjallan á loft til að hvetja fólk til dáða og hringja skólaárið inn.
Það má geta þess að bjallan sem Vilhjálmur hringdi er síðan að Samvinnuskólinn var og hét í Reykjavík, en hann var stofnaður árið 1918 og er fluttur á Bifröst 1955, bjallan er því komin til ára sinna.