Hrói höttur á ferðinni

Leikhópurinn Lotta ferðast um landið nú í sumar með sýninguna Hrói höttur, glænýtt íslenkt leikrit með söngvum. Hópurinn heimsækir yfir 50 staði og verður á Norðurlandi vestra nú um helgina.
14. júní laugardagur 13:00 Hvammstangi - Bangsatún14. júní laugardagur 17:00 Blönduós - Fagrihvammur15. júní sunnudagur 13:00 Sauðárkrókur - Litli skógur

Þetta er áttunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu og er höfundur Hróa Hattar hún Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er fjórða leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006. Ný tónlist hefur einnig verið samin fyrir verkið. Textarnir eru allir eftir Sævar Sigurgeirsson en lögin sömdu meðlimir leikhópsins sjálfir.
Söguna um Hróa hött þekkja flestir en í útgáfu Leikhópsins Lottu fléttast ævintýrið um Þyrnirós inn í atburðarrásina og úr verður einstaklega fjörugt og skemmtilegt verk. Alls eru sex leikarar í sýningunni sem skipta á milli sín 12 hlutverkum. Þá er flutt lifandi tónlist, söngur og dans og því nóg um að vera. Þessu er síðan öllu haldið saman af leikstjóranum og er hann enginn annar en Vignir Rafn Valþórsson en hann vakti mikla athygli í vetur fyrir uppsetningar sínar í Borgarleikhúsinu, Refinn og Bláskjá.Sýningin á Hvammstanga hefst kl. 13:00. Miðaverð er 1.900 kr. og ekki þarf að panta miða fyrirfram heldur er alveg nóg að mæta bara á staðinn. Gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu. Öllum þykir jú gaman að eiga mynd af sér með uppáhalds vini sínum úr Ævintýraskóginum.

Fleiri fréttir