Hross í óskilum
Skrapatungurétt fór fram helgina 17.-18. september og var þar mikið fjör og gaman en samkvæmt vefmiðlinum Húni.is eru nokkur hross í óskilum eftir stóðréttirnar og er nú eigenda þeirra leitað.
Umrædd hross voru:
Jarpur hestur örmerki 352206000076857
Jörp hryssa ómörkuð
Dökkjarpur hestur ómarkaður
Brún hryssa ómörkuð
Jörp hryssa ómörkuð
Grá hryssa var í Fellsrétt
Einnig skilaði eitt sér ekki með örmerki nr. 352206000069857.
Öll hrossin eru á aldrinum 1-6 vetra. Nánari upplýsingar gefur Gauti Jónsson. Sími: 452 4345 eða 865 2421. Netfang:langidalur@simnet.is.