Hrossakjötsmarkaðir að taka við sér

Markaðir fyrir hrossakjöt erlendis eru nú að taka við sér og er eftirspurn talsverð, að því er fram kemur á vef SAH afurða í dag. Af þeim sökum geta SAH afurðir tekið hressilega á móti fullorðnum hrossum til slátrunar út ágúst.

Bændur eru hvattir til að hafa samband við sláturhússtjóra (896-2280 eða elin@sahun.is) þurfi þeir að koma að hrossum til slátrunar. Ítreka skal að öll fullorðin hross og trippi þurfa að vera örmerkt. Einnig er alltaf eftirspurn eftir nautgripakjöti á innlandsmarkað. Athuga skal að skárningarnúmer stórgripa þarf að hafa borist sláturhúsi 24 tímum fyrir slátrun í tölvupósti á elin@sahun.is eða síma 893 2149.

Fleiri fréttir