Hrútavinir á ferð til Raufarhafnar

Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi efnir til rútuferðar á Hrútadaginn mikla á Raufarhöfn sem er hátíðlegur haldinn laugardaginn 4. október 2014.  Ferðin í heild verða 4 dagar  2. okt. – 5. okt. og verður m.a. komið við á Staðarskála í Hrútafirði, Hvammstanga, Blönduósi, Sauðárkróki, Hólum í Hjaltadal.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu verður sauðurinn Gorbi frá Brúnastöðum með í för sem mun setjast að á forystufjársafninu á Svalbarði í Þistilfirði. „Góð þátttaka er í ferðina og lagt verður upp frá Stað á Eyrarbakka fimmtudaginn 2. okt. nk. klukkan 8 að morgni með rútu frá Allrahanda,“ segir í tilkynningunni.

Komið verður við á Höfða í höfuðborginni. Síðan á höfuðstöðum héraðanna á leiðinni og blásið til umræðu og hátíðahalda um sauðkindina og vitsmuni forystufjárins . Þar á meðal; Hvanneyri, Bifröst,  Staðarskála í Hrútafirði, Hvammstanga, Blönduósi, Sauðárkróki, Hólum í Hjaltadal, Hofi á Akureyri, Laufási, Húsavík, Kópaskeri, Raufarhöfn og Svalbarði í Þistilfirði og víðar.

„Góðir leiðsögumenn verða með í ferðinni og margt gert sér til skemmtunar með fólkinu í landinu,“ segir loks í tilkynningunni en fararstjórar verða Guðni Ágústsson, Níels Árni Lund og Björn Ingi Bjarnason.

Fleiri fréttir