Huggulegt haust komið á fullt skrið
Verkefninu Huggulegt haust var hrint af stað í október 2010, með það að markmiði að efla umræðu um lengingu ferðamannatímabilsins á Norðurlandi vestra til 15. okt.
Meginmarkmið verkefnis eru:
- · Lengja ferðamannatímabilið til 15. október
- · Skapa skilyrði til verkefnisbundins samstarfs í ferðaþjónustugeira
- · Fjölga störfum og bæta arðsemi af ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
- · Kynna Norðurland vestra sem eina heild með áherslu á ánægju gesta og nánd við lítt þekkta náttúru og menningu heimamanna.
Undirbúningsfundir SSNV atvinnuþróunar með ferðaþjónustuaðilum og fulltrúum ferðaþjónustusamtaka hafa verið haldnir í öllum sýslum Norðurlands vestra til skiptis. Þessum undirbúningi er nú lokið. Af því tilefni hefur spurningalisti verið sendur öllum ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi vestra til þess að kanna viðhorf hagsmunaaðila til verkefnisins.
Nú tekur við vinnuhópur samansettur af aðilum í greininni og atvinnuráðgjöfum SSNV. Hlutverk vinnuhópsins er að leggja lokahönd á undirbúning verkefnisins og kynna það fyrir almenningi. Kynningaráætlun hefur verið unnin af hagsmunaaðilum. Stefnt er að kynningu Huggulegs hausts í maí á sýningu „Íslandsperlur“ í Perlunni, sem og útgáfu kynningarefnis. Kynningar munu m.a. fara fram í samstarfi við Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi.
/ssnv.is