Húnabjörg kölluð út

Björgunarsveitin Strönd var kölluð út aðfaranótt mánudags eftir að beiðni um aðstoð barst frá hundrað tonna fiskveiðibát. Báturinn hafði fengið rækjutroll í skrúfuna um 50 kílómetra úti fyrir Skagaströnd rétt eftir miðnætti þann 20. maí. Húnabjörg, björgunarskip sveitarinnar, fór af stað til móts við bátinn og tók hann í tog.

Vel gekk að draga bátinn til hafnar og var komið til Skagastrandar um klukkan 10 á mánudagsmorgun. Húni.is sagði frá þessu.

Fleiri fréttir