Húnabjörg kölluð út tvisvar sama daginn
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
23.09.2015
kl. 17.27
Húnabjörg, björgunarskip Landsbjargar á Skagaströnd, var í tvígang kallað út í gær. Fyrr um daginn var skipið kallað út vegna elds um borð í skipi norður af Sauðanesi en skjótt náðist að loka rýmum sem eldurinn kom upp í og setja af stað slökkvikerfi. Var þá Húnabjörgin afturkölluð.
Um kl. 20 um kvöldið var Húnabjörgin aftur kölluð út vegna vélarvana báts sem var um 20 sjómílur frá Skagaströnd. Ekki var talin mikil hætta á ferð en tveir menn voru um borð.