Húnabraut og Hafnarbraut ekki lengur í umsjá Vegagerðarinnar

Í maí á síðasta ári tilkynnti Vegagerðin sveitarfélaginu Blönduósbæ að Húnabraut og Hafnarbraut frá gatnamótum Hringvegar að hafnarsvæði félli ekki lengur undir skilgreiningu vegalaga nr. 80/2007 og Vegagerðin mundi því hætta að greiða fyrir viðhald og þjónustu á umræddum vegi. Blönduósbær gerði athugasemd við þessa ákvörðun og mótmælti henni.

Fram kom á fundi bæjarráðs að Vegagerðin vilji kanna afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort tiltekinn vegur sé í „viðunandi ástandi“. Ef svo er ekki að mati sveitarfélagsins er óskað eftir að fá fram skoðun á því hvað gera þurfi til þess að koma veginum í það ástand, að unnt sé að skila honum til samræmis við ákvæði núgildandi vegalaga.

Fleiri fréttir