Húnabyggð auglýsir Húnavelli til sölu
Húnabyggð hefur nú auglýst eignina Húnavelli til sölu.
Eignirnar eru samtals 4.331,7 fermetrar og samanstanda af skólahúsnæði, hóteli/íbúðum, einbýlishúsi, leikskóla, íþróttasal, sundlaug, heitum pott, stóru leiksvæði og tjaldstæði með rafmagni.
Lóðin er 8,3 hektarar og býður upp á ýmiskonar þróunarmöguleika segir í auglýsingu frá Húnabyggð.
Eignin er sögð henta vel fyrir frekari uppbygingu í ferðaþjónustu bæði í gistingu og afþreyingu, enda ferðamannaiðnaðurinn í mikilli þróun á Norðurlandi vestra.