Húnahornið 15 ára í dag
Í dag eru liðin 15 ár frá því fyrsta fréttin var skrifuð og birt á Húnahorninu sem er er vefmiðill fyrir Austur-Húnavatnssýslu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og umhverfi vefmiðla breyst mikið. Vefmiðlar koma og fara en miðill af þessu tagi er jafn mikilvægur í dag og hann var fyrir 15 árum.
„ Vefurinn var fyrst og fremst settur á laggirnar til gagns og gamans fyrir Húnvetninga nær og fjær með áherslu á að segja frá skemmtilegu mannlífi, atvinnulífi, framkvæmdum og framförum í Húnavatnssýslu. Einnig eflingu byggðar og öllu því sem gerir héraðið sérstakt og jákvætt að lifa og starfa í eða heimsækja sem ferðamaður,“ segir á Húnahorninu í dag.
Feykir hefur frá upphafi átt í góðu samstarfi við Húnahornið. Vefurinn er afar lifandi og metnaðarfullur og þrátt fyrir að vera rekinn í sjálfboðastarfi er þar ekkert lát á. Feykir fær gjarnan upplýsingar um það sem fréttnæmt er af svæðinu í gegnum Húnahornið sem einnig hefur góðfúslega látið okkur í té myndefni í gegnum tíðina. Feykir óskar Húnahorninu innilega til hamingju með afmælið og bjartrar framtíðar.