Húnahornið leggur Styrktarsjóðnum lið

Fulltrúi Húnahornsins afhenti stjórn Styrktarsjóðsins peningagjöfina í gær. Mynd: huni.is.
Fulltrúi Húnahornsins afhenti stjórn Styrktarsjóðsins peningagjöfina í gær. Mynd: huni.is.

Húnahornið, fréttavefur Húnvetninga, hefur ákveðið að leggja 500.000 krónur í Styrktarsjóð Húnvetninga. Það er von Húnahornsins að fjárframlagið bæti upp að mestu þann tekjumissi sem Styrktarsjóðurinn varð fyrir vegna þess að aflýsa þurfti Styrktarsjóðsballinu sem halda átti laugardaginn 24. október síðastliðinn. 

Húnahornið metur starf Styrktarsjóðsins mikils og telur nauðsynlegt að hann standi sterkur til þess að geta þjónað sínu mikilvæga hlutverki sem best. Jafnframt hvetur Húnahornið alla þá sem geta lagt Styrktarsjóðnum liða að gera það með því að leggja pening inn á reikning sjóðsins, 0307-26-006509, kt. 650997-2479.

Styrktarsjóður Húnvetninga var stofnaður 16. mars árið 1974. Markmið sjóðsins er að veita héraðsbúum aðstoð þegar óvænta erfiðleika ber að höndum, þó fyrst og fremst hjálp í erfiðum sjúkdómstilfellum þar sem ekki er veitt næg aðstoð af hálfu opinberra aðila og fjárframlög til kaupa á lækningatækjum og öðrum þeim tækjum eða aðstöðu sem skapar bætta sjúkrahjálp og heilsugæslu í héraðinu.

Húnahornið hefur í tæp 15 ár flutt fréttir úr Húnavatnssýslum og verið vettvangur þeirra sem vilja tala til Húnvetninga. Vefurinn er áhugamál eða samfélagsverkefni þeirra sem að honum standa og fer vinna við hann fram í frístundum þeirra og án greiðslu.

Seldar eru auglýsingar á Húnahorninu til að standa straum af rekstrarkostnaði vefsins sem aðallega er hýsingakostnaður og viðhald vefumsjónarkerfis. Auglýsingatekjur hafa flest árin verið hærri en rekstrarkostnaður og vill Húnahornið nú skila þeim peningum til samfélagsins með því að styrkja þetta verðuga samfélagsverkefni sem Styrktarsjóður Húnvetninga er.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir