Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í A-Hún

Húnahornið stendur nú fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu í ellefta sinn og stendur valið til til miðnættis 22. janúar nk. Úrslit verða kynnt á Þorrablóti Vökukvenna á Blönduósi, laugardaginn 23. janúar.

„Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna,“ segir á huna.is.

Tilnefningar berist með rafrænum seðli á vef húna.is. 

Fleiri fréttir