Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Húnaþingi

Húnahornið stendur nú fyrir vali á manni ársins í Húnaþingi í sjöunda sinn og stendur valið til miðnættis þann 18. janúar nk. og verða úrslit kynnt laugardaginn 21. janúar.

„Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Húnaþingi getur verið einn einstaklingur eða hópur manna,“ segir á huna.is.

Í fyrra var Bóthildur Halldórsdóttir valin maður ársins af lesendum Húnahornsins, þá annað árið í röð.

Menn ársins í Húnaþingi síðustu ár eru þessir:
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.

RAFRÆNN ATKVÆÐASEÐILL

Fleiri fréttir