Húnar aðstoða við Hvítserk
Í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Húna á Hvammstanga þar sem erlendir ferðamenn lentu í vandræðum við Hvítserk og komust ekki til baka á jeppa sínum. Á heimasíðu sveitarinnar segir að farið hafi verið á Húna 2 og gekk vel hjá strákunum að koma þeim aftur upp á þjóðveg og gátu ferðamennirnir haldið áfram för sinni.
Næstkomandi laugardag verður sameiginleg æfing Björgunarsveitanna Húna og Strandar þar sem farið verður í línur, klifur o.fl. því tengt og verður æfingin haldin í íþróttahúsinu á Skagaströnd.