Húnaþing vestra hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Húnaþing vestra hlaut nýverið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. „Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif,“ segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.
 

Þar segir jafnframt að fjölbreytt stjórnendateymi taki betri ákvarðanir, stuðli að sterkari menningu og betri árangri. „Til viðbótar þá eru kynjahlutföll í nefndum og ráðum sveitarfélagsins jöfn, bæði ef litið er til heildarfjölda nefndarmanna í fastanefndum og formanna þeirra. Sveitarstjórn hefur enda lagt á það sérstaka áherslu að gæta að kynjajafnvægi við skipan í nefndir og ráð.

Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna. Jafnrétti er ekki verkefni sem hægt er að ljúka á einhverjum tímapunkti, heldur er stöðug vinna sem við höldum áfram að sinna af alúð.“

Heimild: Hunathing.is

Fleiri fréttir