Húnavaka 2010 um helgina

Húnavaka, bæjarhátíð Blönduósinga, verður haldin næstu helgi, 16. – 18. júlí.Húnavaka er fjölbreytt fjölskyldu- og menningarhátíð þar sem Blönduósingar og gestir koma saman og eiga skemmtilega daga. Í ár ber hæst vígsla glæsilegrar nýrrar sundlaugar í bænum sem kemur Blönduósi svo sannarlega á kortið sem ákjósanlegum ferðamannastað.

Fastir liðir á Húnavöku eru fjölskylduskemmtun, kvöldvaka með varðeld og bakkasöng á bökkum Blöndu, dansleikir, hátíðardagskrá í söfnum bæjarins, listsýningar, golfmót,söngkeppni fyrir börn, víðavangshlaup og ýmislegt fleira.

Ein skemmtilegasta hefðin á Húnavöku er bakkasöngurinn þar sem bæjarbúar og gestir syngja saman. Einnig koma allir sem eitthvað kunna á gítar með kassagítara sína og spila með. Textar og gítargrip eru aðgengileg á www.huni.is<http://www.huni.is/>. Ætla má að í fyrra hafi u.þ.b. 30 kassagítarspilarar tekið þátt og vonandi fjölgar þeim enn frekar.

Meðal þeirra sem koma fram í ár eru Sálin hans Jóns míns, leikararnir Gói og Halli, (Guðjón Davíð Karlsson og Hallgrímur Ólafsson) Ingó, Ari Eldjárn, Bjartmar Guðlaugsson og Stefán Hilmarsson. Þá verður gamanleikurinn Hellisbúinn með Jóhannesi Hauki Jóhannessyni sýndur á hátíðinni.

Dagskrárliðir:

Vígsla nýju sundlaugarinnar á Blönduósi.

Stórdansleikur í Íþróttahúsinu – Sálin hans Jóns míns.

Hellisbúinn – gamanleikur með Jóhannesi Hauki Jóhannessyni í Félagsheimilinu.

Bjartmar Guðlaugsson

Söngkeppni barna og unglinga.

Sundpartý fyrir krakka í nýju sundlauginni.

Skrúðganga.

Skólalúðrasveit Seltjarnarness.

Fjölskylduskemmtun á torginu:

· Gói og Halli

· Skólalúðrasveit Seltjarnarness

· Ingó

· Tilraunalandið, farandsýning Norræna hússins og HÍ. 14 tilraunir, 33 leiktæki og 12 þrautir.

· Barnaleiktæki og hoppkastalar

· Félagar úr bifhjólaklúbbnum Smaladrengjum koma á hjólum sínum á hátíðarsvæðið

· Markaðsstemning

Kvöldvaka í Fagrahvammi:

· Gói og Halli

· Bjartmar Guðlaugsson

· Fegrunarverðlaun Blönduósbæjar

· Ari Eldjárn

· Sigurvegarar úr söngkeppni barna og unglinga syngja

· Félagar úr Björgunarfélaginu Blöndu tendra varðeld

· Stefán Hilmarsson

· Bakkasöngur og fjöldakassagítarleikur

Handverkssýning í Heimilisiðnaðarsafninu.

Leiðsögn um Hafíssetrið með Þór Jakobssyni.

Fyrirlestur Catherine Chambers í Kvennaskólanum um áhrif hafíss á líf Inúíta í Alaska.

Myndlistarsýning Ragneyjar Guðbjartsdóttur í gömlu kirkjunni.

Bókamarkaður í Héraðsbókasafninu.

Sýning á ljósmyndum Björns Bergmann í Héraðsskjalasafni A-Hún.

Opið hús í Kvennaskólanum undir leiðsögn Aðalbjargar Ingvarsdóttur og Ásdísar Birgisdóttur.

Opið hús og lifandi tónlist í Blönduóskirkju.

Golfklúbburinn Ós - Opna Gámaþjónustumótið.

Blönduhlaup USAH.

Fleiri fréttir