Húnavaka á n4
Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur verið á Blönduósi undanfarið við upptökur á efni í tengslum við Húnavöku, en hátíðin fer sem kunnugt er fram um næstu helgi. Efnið er sýnt þessa dagana á stöðinni og má þar m.a. sjá viðtal við Húnavökusystkinin Eystein Pétur og Kristínu Ingibjörgu Lárusbörn.
Einnig eru fyrirtæki á staðnum sem taka þátt í stóra fyrirtækjadeginum heimsótt. Horfa má á þættina hér.