Húnavakan á Blönduósi um næstu helgi

Næstkomandi föstudag hefst Húnavakan sem að vanda er haldin ár hvert og nú búið að festa hana þriðju helgina í júlí. Dagskráin er metnaðarfull og margir skemmtilegir viðburðir á boðstólnum en þar má nefna skemmtidagskrá á torginu á laugardeginum, tenórarnir tveir og allir hinir í Félagsheimlinu á föstudeginum ásamt balli með Sigga Hlö.

Þá verður Blönduhlaup USAH þreytt, athöfn í tilefni af gerð refils um sögu Vatnsdælu en fyrstu spor hans verða tekin, diskó-sund á föstudeginum í sundlauginni, hin víðfræga kvöldvaka í Fagrahvammi, tónleikar með Bjartmari og stórball í íþróttahúsinu með Ingó og Veðurguðunum ásamt Björgvini Halldórssyni.

Á sunnudeginum verður svo golfmót Gámaþjónustunnar og dagskrá í Heimilisiðnaðarsafninu og Hafíssetrinu svo fátt einn sé nefnt. Undirbúningur að því að skreyta bæinn er hafin og hafa nú þegar verið haldnir götufundir til að skipuleggja skreytingar á einstaka götum.

Bæjarhátíðin Húnavaka er fyrst og fremst fjölskyldu og bæjarhátíð Húnvetninga og er vonast til að sjá sem flesta taka þátt í þeim viðburðum sem í boði eru.

Fleiri fréttir