Húnavökudagskráin stórglæsileg

Nú styttist í Húnavöku, hina árlegu fjölskyldu- og menningarhátíð Blönduósinga sem fer fram dagana 19. - 22. júlí næstkomandi og má finna dagskrá hátíðarinnar í nýútkomnum kynningarbæklingi um Blönduós. Alla dagana á Húnavöku verður kvikmyndasýning í gömlu kirkjunni, opið í Hafíssetrinu, Laxasetrinu, Heimilisiðnaðarsafninu, Textílsetrinu og Eyvindarstofu. Einnig verða kaffihús, veitingastaðir, sundlaugin, sjoppan og bakaríið opin.

Dagskrá Húnavöku er sérlega glæsileg en hátíðin verður formlega sett fimmtudaginn 19. júlí klukkan 18:30 fyrir framan Hafíssetrið og í framhaldinu verða umhverfisverðlaun Blönduósbæjar veitt. Að því loknu verður haldið bæjargrill í Aðalgötunni þar sem bæjarbúar munu koma saman með sitt kjöt, sín borð og sína stóla, að ógleymdu góða skapinu. Formlegri dagskrá þessa fyrsta dags á Húnavöku lýkur síðan með leikjakvöldi í gamla bænum þar sem boðið verður upp á pokahlaup og þrautir og sitthvað fleira.

Hver atburðurinn mun svo reka annan alla helgina og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hægt verður að fylgjast með undirbúningi og skoða dagskrá Húnavöku á Fésbókarsíðu Húnavöku.

Fleiri fréttir