Hundar dýrari en kettir

Gæludýraeigendur á Blönduósi það er þeir gæludýraeigendur sem eiga hund og eða kött þurfa nú að standa skil á gjöldum til bæjarins. Í gjaldskrá fyrir gæludýrahald kemur fram að árgjald fyrir hund er krónur 15.120 en árgjald fyrir köttinn er krónur 1470.

Á heimasíðu Blönduósbæjar er skorað á gæludýraeigendur að skrá dýr sín og ganga frá greiðslu árgjalda en allar nánari upplýsingar má finna á síðunnu www.blönduos.is

Fleiri fréttir