Hundasúrur góðar í kreppunni og graslaukurinn flottur í sósuna

 Nú þegar pokinn af góðu salati kostar orðið svo sem eins og hálfan handlegg er ekki úr vegi að fara út í guðsgræna náttúruna í leit að hárefni í salatið. Hundasúrur og arfi koma þar sterk inn.

 Hundasúrur og eða Ólafssúrur sem sumir kalla kattasúrur vaxa víða villt og fáum til nytja en í raun má svo gjarnan nota þessar jurtir í sallöt og sem gómsætt snakk. Enn aðrir hafa prófað sig áfram við að nota súrurnar í pestó og þá í stað grænkáls og eða basil.

Arfinn, þessi gamli góð græni með hvítu blómunum sem sumir kalla hjarta arfa er einnig mjög bragðgóður út í salöt. Þá getur verið gott að brytja niður rababara og fá smá  auka súr í salatið. Allt eftir smekk.

Það er því tilvalið að senda börnin út í efnisleit í salatið með helgarsteikinni. Eins þekkist að hundasúruhnausar séu stungnir upp og hafðir með í matjurtagarðinum.

Graslaukinn sem margir eiga í garðinum má síðan nota til að bragðbæta grillsósuna en þá er hann saxaður smátt og hrærður saman við sýrðan rjóma. Graslauk er líka gott að setja ofan á fiskinn áður en hann er grillaður.

Leynist forðabúr í bakgarðinum þínum?

Hundasúrupestó fyrir fjóra

80 g hundasúrur, graslaukur, fíflablöð, steinselja eða annað

grænt sem til er.

25 g furuhnetur

1 hvítlauksgeiri

Salt

Ólífuolía

3 msk. ferskur rifinn parmesan ostur

Setjið það græna, hnetur, hvítlauk og salt í matvinnsluvél þannig það saxist

smátt. Bætið olíu útí þangað til að ykkur finnst það

mátulega lint. Bætið ostinum við í lokin.

Fleiri fréttir