Hundrað ára Húnvetningur
Ingibjörg Hjálmarsdóttir Bergmann varð hundrað ára í gær, 20. janúar, og fagnaði því í hópi ættingja og vina á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Á Mbl.is kemur fram að þar hafi hún verið hrókur alls fagnaðar, lék við hvern sinn fingur, tók duglega undir í fjöldasöng og kvað meira að segja stemmu með Sigurði Sigurðarsyni dýralækni.
Ingibjörg Hjálmarsdóttir Bergmann og Guðmundur Jónasson Bergmann bjuggu á Stóru-Giljá. Mynd: Facebook-síða Langlífi.
Ingibjörg er afkomandi Bólu-Hjálmars í fjórða lið. Foreldrar hennar voru Hjálmar Lárusson smiður og myndskeri á Blönduósi (f. 1868, d. 1927) og Anna Halldóra Bjarnadóttir (f. 1888, d. 1964). Systkini hennar voru Sigríður, Jón, Ríkharður, Margrét, Kjartan og Hjálmar Jón.
Sumarið 1938 giftist Ingibjörg Guðmundi Jónassyni Bergmann trésmíðameistara og bónda (f. 1909, d. 1987). Þau bjuggu á Stóru-Giljá og Öxl. Þau voru barnlaus en ólu upp tvö fósturbörn.
Ingibjörg Bergmann býr nú í Hnitbjörgum, íbúðum aldraðra á Blönduósi, og er sögð við góða heilsu. Sjá nánar á vefsíðunni Langlífi.