Húnvetningar stóðu sig frábærlega á Silfurleikum ÍR
Fimmtán frjálsíþróttakrakkar frá USAH kepptu á Silfurleikum ÍR sem haldnir voru í Laugardalshöllinni í Reykjavík, laugardaginn 19. nóvember sl.
Mótið er haldið til að minnast silfurverðlauna Vilhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum 1956 og er fyrir keppendur 17 ára og yngri. Keppendur á mótinu voru 560 talsins frá 22 samböndum. Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar segir: „Allir stóðu sig frábærlega og það sem mestu máli skiptir er að allir skemmtu sér konunglega.“
Verðlaunahafar Húnvetninga:
- Magnús Örn Valsson varð í 2. Sæti í kúluvarpi í flokki pilta 16-17 ára.
- Egill Örn Ingibergsson sigraði í kúluvarpi í flokki pilta 13 ára.
- Páll Halldórsson varð í 2. sæti í kúluvarpi í flokki pilta 12 ára.
- Valgerður Guðný Ingvarsdóttir varð í 2. sæti í kúluvarpi í flokki stúlkna 11 ára.
