Húnvetningur tekur sæti á Alþingi
Húnvetningurinn Telma Magnúsdóttir tók sæti á Alþingi sl. þriðjudag en hún er varamaður fyrir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, sem er stödd erlendis. Telma hefur ekki sest á þing áður og því undirritaði hún drengskaparheit sitt áður en hún settist á þingbekk.
Telma er ferðamálafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er fædd 11. mars 1983 og kemur frá Steinnesi í Húnavatnssýslu. Hún er dóttir Magnúsar Jósefssonar bónda og Líneyjar Árnadóttur forstöðukonu Vinnumálastofnunar á Norðurlandi Vestra.
Telma hefur starfað með Vinstri grænum í nokkur ár og var í 5. sæti á lista Norðvesturkjördæmis í síðustu kosningum.
Heimildir: mbl.is og vg.is