Húnvetnska jólakarfan klikkar ekki
Sú hefð hefur skapast hjá SAH Afurðum á Blönduósi að bjóða upp á húnvetnska jólakörfu fyrir jólin og er engin breyting þar á fyrir þessi jól. Einnig verða í boði gourmet askja með ýmsu góðgæti, jólaglaðningur sem er hagkvæmur kostur og síðast en ekki síst Kjetkrókur frá SAH Afurðum.
Í húnvetnsku jólakörfunni er hægt að velja um þrjár kjöttegundir, úrbeinað hangilæri, eða svínahamborgarahrygg, eða kryddað lambalæri en auk þess eru í körfunni vörur frá fyrirtækjum á svæðinu, vörur frá Vilko ehf., Prima og bakkelsi frá Sveitabakaríi.
Í gourmet öskjunni er að finna lambaprime, tvíreykt hangikjöt, hreindýra- og sveitapaté ásamt Cumberlandsósu, þrjár gerðir af ostum, sulta, kex, jólaservíettur og eitthvað sætt og gott.
Hér er hægt að velja um þrjár kjöttegundir í jólaglaðningi, úrbeinað hangilæri, eða svínahamborgarahrygg, eða kryddað lambalæri frá SAH Afurðum, einnig verða smákökur og eitthvað sætt og gott.
Svo er það Kjetkrókur en þar leynist hið eina sanna Kosta hangilæri með beini frá SAH Afurðum í gjafapakkningu. Þjóðlegt og gott.
Nánari upplýsingar um þetta góðmeti er hægt að nálgast HÉR