Húnvetnska liðakeppnin

Nú fer að líða að stóru stundinni hjá hestamönnum í Húnavatnssýslum - Húnvetnsku liðakeppninni. Haldin verða fjögur mót, dagana 10. febrúar, 25. febrúar, 16. mars og 14. apríl. 

Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:

10. febrúar - Fjórgangur
25. febrúar - Smali og skeið á Blönduósi
16. mars - Fimmgangur og tölt T7 í 3. flokki og unglingaflokki
14. apríl - Tölt T3 (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt)

Reglur keppninnar árið 2012:

Liðin eru fjögur; lið 1, 2, 3 og 4. Liðsskipan er ekki bundin við lögheimili og er fólki því í sjálfsvald sett hvaða liði það vill vera í.

Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili. Einnig verður hver og einn knapi að velja sér hvort hann ætlar að keppa í 1., 2. eða 3. flokki í upphafi tímabils en þær nýjungar verða í ár að keppendur mega hækka sig um flokk hvenær sem er á tímabilinu, en aðeins hækka sig. Ef knapi velur að hækka sig getur hann ekki lækkað sig aftur á tímabilinu. Þetta hefur þau áhrif í einstaklingskeppninni að knapi getur ekki flutt með sér stig á milli flokka.

Hver keppandi má keppa á fleiri en einum hesti í hverri grein, en ef keppandi kemst með tvo hesta í úrslit verður hann að velja á milli þeirra og aðeins keppa á öðrum í úrslitum. Ekki hægt að fá aukaknapa til að ríða úrslit fyrir sig.

Á lokamóti mótaraðarinnar má ekki bætast nýr aðili við liðið nema að hann hafi verið skráður félagsmaður í Neista eða Þyt fyrir fyrsta mót mótaraðarinnar, sem er árið 2012 10. febrúar nk.

Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Nánar um reglurnar og mótið má sjá á heimasíðu Hestamannafélagsins Þyts.

Heimild: Hestamannafélagið Þytur

Fleiri fréttir