Húnvetnskar konur hittast í Perlunni
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
31.01.2014
kl. 11.17
Mánaðarlegur hittingur hjá brottfluttum húnvetnskum konum verður í Perlunni á laugardaginn 1. febrúar og er mæting kl. 12:00. Á þessum hittingum er mikið spjallað og sögur sagðar af öllum mögulegu og ómögulegu.
Alltaf gaman að sjá ný andlit og tilvalið fyrir konur sem ætla að skreppa í borgina um helgina að líta við í Perlunni og fá sér hádegismat og létt spjall, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.