Húseyjarkvíslin með yfir 100 laxa

Þeir eru vænir laxarnir úr Húseyjarkvíslinni. Mynd: Fésbókarsíða Mokveiðifélagsins.
Þeir eru vænir laxarnir úr Húseyjarkvíslinni. Mynd: Fésbókarsíða Mokveiðifélagsins.

Rúmlega hundrað laxar hafa veiðst í Húseyjarkvísl í Skagafirði það sem af er árinu, sem er mun meira en á sama tíma í fyrra, að sögn Þorsteins Guðmundssonar.

„Veiðin á sama tíma í fyrra var ekki uppá marga fiska en Kvíslin sló reyndar metið í fyrra þegar leið á. Niðurstaðan í fyrra var 410 fyrra og um 1000 sjóbirtingar ef ég man rétt,“ sagði Þorsteinn í samtali við Feyki í gær. „Megnið af laxinum er 2 ára fiskur og vel í holdum, flestir 80-90cm fiskar,“ sagði Þorsteinn ennfremur.

Eftirfarandi ár á Norðurlandi vestra eru nú á lista Landssambands veiðifélaga yfir 75 aflahæstu ár landsins. Talan í dálkinum hægra megin sýnir heildarfjölda veiddra laxa í fyrrasumar.

Blanda                 1300 4829

Miðfjarðará          1003 6028

Víðidalsá             331   1626

Vatnsdalsá          292   1297

Laxá á Ásum       163   1795

Hrútarfj.á/Síká     88     860

Svartá í Hún.       70     619

Fljótá                   29     142

(Heimild: angling.is/veiditolur)

Fleiri fréttir