Húshitun ekki lengur ódýrust á Sauðárkróki

Byggðastofnun hefur fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum og nokkrum stöðum í dreifbýli á ársgrundvelli.

Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 140 fermetrar að grunnfleti og 350 rúmmetrar. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt gjaldskrá þann 1. apríl 2015. Við útreikninga þessa er almenn notkun og fastagjald tekið saman annarsvegar og hitunarkostnaður hinsvegar. Sala á rafmagni er á samkeppnismarkaði og er í útreikningum Orkustofnunar miðað við að allir kaupi orku þar sem orkan fæst á lægsta verði.

Notendur eru bundnir því að versla við dreifiveitur á sínu svæðum sem hafa sérleyfi á dreifingu og flutningi á raforku. Almennt eru það síðan dótturfyrirtæki dreifiveitnanna sem selja sama notanda raforku til notkunar. Notendum virðist almennt ekki vera ljóst að þeim er heimilt að kaupa raforku af hvaða sölufyrirtæki sem þeir kunna að kjósa en þau eru nokkur og með mismunandi verð. Það gæti stafað af því að sáralítill verðmunur er á milli einstakra söluaðila og því eftir litlu að slægjast.

Af þeim stöðum sem skoðaðir voru reyndist rafmagnsverð hæst hjá notendum Orkubús Vestfjarða í dreifbýli kr. 102.010 en var hæst hjá RARIK í dreifbýli árið 2014. Í þéttbýli er rafmagnsverð hæst á orkuveitusvæði Orkubús Vestfjarða kr. 80.021 en var hæst hjá RARIK árið 2014. Munurinn er þó lítill eða í kringum 1%. Lægst er rafmagnsverðið á Akureyri kr. 69.404 en árið 2014 var rafmagnsverð einnig lægst á Akureyri.

Þegar kemur að húshitunarkostnaði er munurinn öllu meiri. Þar er kyndingarkostnaðurinn sá sami á orkuveitusvæði RARIK í dreifbýli og hjá Orkubúi Vestfjarða í dreifbýli kr. 203.015. Í þéttbýli er kostnaðurinn hæstur á Hólmavík kr. 198.916. Árið 2014 var húshitunarkostnaður hæstur á dreifiveitusvæði Orkubús Vestfjarða þar sem rafmagnshitun er við lýði s.s. Hólmavík. Lægsti húshitunarkostnaðurinn er í Hveragerði kr. 85.255 en árið 2014 var húshitunarkostnaður lægstur á Sauðárkróki.

Nánar er hægt að lesa um þetta og skoða myndrit á vef Byggðastofnunar

.

Fleiri fréttir