Húsið Tilraun jólahús ársins á Blönduósi
Á síðasta degi jóla tilkynnti vefurinn Húnahornið um val lesenda á Jólahúsi ársins 2016 á Blönduósi. Flestir sem tóku þátt í jólaleiknum völdu Aðalgötu 10 – Tilraun. Húsið, sem er fallega skreytt jólaljósum í látlausum en smekklegum stíl, stendur í gamla bænum, sunnanmegin við gömlu kirkjuna undir brekkunni við Aðalgötu og er í eigu Bjarna Pálssonar og Huldu Leifsdóttur. Að þessu sinnu fengu frekar fá hús tilnefningar en þeirra á meðal má nefna Brekkubyggð 17 og 24, Húnabraut 10 og Heiðarbraut 9.
Til fróðleiks má benda á að fjallað er um Tilraun í fyrstu útgáfu af húsakönnun fyrir afmörkuð svæði í þéttbýlinu á Blönduósi sem skoða má á vef Blönduósbæjar. Þar segir:
Húsið var reist af Bindindisfélaginu Tilraun og nýtt sem samkomu- og fundahús. Bindindisfélagið mun hafa hætt skömmu síðar en 1926 var Templarafélagið enn við lýði og hélt fundi sína í bókasafnsstofunni í „Tilraun“ eins og húsið var kallað. Árið 1908 var samþykkt að gera Blönduós að sérstöku skólahéraði og síðla árs 1908 voru tvær stórar skólastofur á efri hæð hússins teknar á leigu. Skólinn í Tilraun var rekinn þar frá 1908 – 1946. Þar var einnig aðstaða til fundahalda og Sýslubókasafn til húsa. Símstöð var rekin í húsinu árið 1912. Á neðri hæð hússins var íbúð. Nú er húsið eingöngu notað sem íbúð og sem gistiheimili.
Húsið er byggt 1907. Flokka mætti byggingarstílinn sem „Klassískan“. Húsið er eitt af 11 steinsteyptum húsum á Blönduósi, sem byggð voru fyrir 1910. Húsið er einnar hæðar steinhús á háum kjallara með valmaþaki. Upphaflega var gengið inn á aðalhæð hússins um inngönguskúr að sunnanverðu. Hann er nú horfinn en aðalinngangur er áfram á þeirri hlið. Bílskúr sunnan við hús var stækkaður 1965. Inngönguskúr var reistur 1940 að norðanverðu. Hann var rifinn 1968 og endurbyggður 1970. Árið 2013 var lokið endurgerð á gluggum og þeir færðir í upprunalegan stíl, húsið málað og ástand þess virðist gott.“
Þetta var í fimmtánda sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á Jólahúsi ársins á Blönduósi. Þau hús sem hlotið hafa viðurkenningu eru:
2016: Aðalgata 10 (Tilraun)
2015: Skúlabraut 1
2014: Hlíðarbraut 1
2013: Heiðarbraut 1
2012: Mýrarbraut 33
2011: Melabraut 19
2010: Mýrarbraut 35
2009: Hlíðarbraut 4
2008: Hlíðarbraut 8
2007: Ekkert val
2006: Sunnubraut 3
2005: Hlíðarbraut 8
2004: Hlíðarbraut 13
2003: Garðabyggð 1
2002: Hlíðarbraut 13
2001: Brekkubyggð 17