Hvað er að gerast í Verinu?

Í tilefni þess að Verið hefur stækkað verður opið hús á morgun miðvikudaginn 16. maí kl. 13.30 – 16.00 til að kynna starfsemina í Verinu og niðurstöður styrkveitinga AVS sjóðsins þetta árið.

Húsið verður opnað fyrir gesti og gangandi kl. 13.30 og er þá hægt að skoða sig um en klukkan 14.00 hefjast ávörp eftir að Gísli Svan Einarsson framkvæmdastjóri VERSINS Vísindagarða hefur sett samkomuna.

Ávörp flytja:
Jón Eðvald Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Lárus Ægir Guðmundsson formaður AVS skýrir úthlutun sjóðsins
Skúli Skúlason rektor Hólaskóla – Háskólans á Hólum
Sveinn Margeirsson forstjóri Matís

Boðið verður upp á kaffi og kleinur og ættu sem flestir að nýta sér þetta tækifæri til að kynna sér hvað er að gerast í Verinu.

Fleiri fréttir