Hvatardrengir selja Álfinn
Hópur drengja úr 6. flokki í knattspyrnu hjá Hvöt ætla að ganga í hús á Blönduósi og selja Álfinn. Það er gert til að styrkja starf SÁÁ og einnig til að fjármagna fyrirhugaða ferð flokksins til Vestmannaeyja á Pollamót í knattspyrnu. Sala á Álfinum stendur frá 7. - 13. maí og verður posi tiltækur ef eftir því er óskað, segir á heimasíðu Húna.is.
Sala á Álfinum er mikilsverðasti þátturinn í fjáröflun SÁÁ. Frá því að sala á honum hófst árið 1990 hafa hreinar tekjur samtakanna vegna hans verið um 430 milljónir króna. Þessir fjármunir hafa staðið til dæmis undir uppbyggingu unglingadeildarinnar að Vogi, starfsemi fjölskyldumeðferðarinnar og gert SÁÁ fært að þróa úrræði fyrir börn alkóhólista, ungmenni og fjölskyldur.