Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna? - Morgunfundur Vegagerðarinnar

Núna klukkan kl. 9 hefst í streymi fundur Vegagerðarinnar sem ber yfirskriftina Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna? Umfjöllunarefnið er vetrarþjónustan á þjóðvegum landsins frá ýmsum hliðum og verða haldin áhugaverð erindi sem koma víða að. „Stöðugt er kallað eftir aukinni þjónustu við vegakerfið að vetri. Atvinnusókn á landsbyggðinni hefur breyst og fólk sækir í meiri mæli vinnu milli bæjarfélaga. Þessi samfélagsbreyting kallar á aukna þjónustu við vegakerfið. Miklu skiptir einnig að afurðir og vörur komist klakklaust milli landshluta, þrátt fyrir hálku og fannfergi.

Vegagerðin sinnir vetrarþjónustu á stórum hluta vegakerfis landsins utan þéttbýlis. Þessum morgunfundi er ætlað að útskýra hvernig vetrarþjónustan fer fram og fá fram fleiri sjónarmið á þá þörf sem er fyrir vetrarþjónustu í þjóðfélaginu,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Dagskrá:

 Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar – hvernig er hún ákveðin? Einar Pálsson forstöðumaður á þjónustusviði Vegagerðarinnar.
 Framkvæmd vetrarþjónustu – vöktun og eftirlit. Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar
 Þróun vetrarumferðar á Íslandi. Friðleifur Ingi Brynjarsson, verkefnastjóri á umferðardeild Vegagerðarinnar
 Lífæð landsbyggðarinnar – áætlunarflutningar og vegakerfið. Böðvar Örn Kristinsson, forstöðumaður innanlandsflutninga Flytjanda.
 Vetrarþjónusta – einn þáttur samgönguöryggis. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, og Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur á Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri.

Morgunfundurinn er hluti fundaraðar sem haldin verður í vetur og lýkur í vor með ráðstefnu um yfirlagnir á Íslandi. Á fundunum, sem fylgja í kjölfar þessa, verður fjallað um bikblæðingar og þjóðvegi á hálendi Íslands.

Á ráðstefnunni verður fjallað heildstætt um yfirlagnir og bundið slitlag þar sem erlendir sérfræðingar verðar einnig fengnir til að fjalla um málefnið út frá sínu sjónarhorni og með áherslu á hvort framkvæmdum á Íslandi sé háttað á annan hátt en annars staðar.

Streymt verður á eftirfarandi slóð: https://livestream.com/accounts/5108236/events/9533990

Hægt er að spyrja spurninga í gegnum síðuna Sli.do með því að slá inn kóðanum: #vetur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir