Hvessir í kvöld en lægir aftur í nótt
Austlæg eða breytileg átt er í veðurkortum Veðurstofu Íslands þennan morguninn, 3-10 metrar á sekúndu og rigning með köflum undir hádegi. Vaxandi sunnanátt seinnipartinn og dregur úr úrkomu. Sunnan 15-20 og skúrir í kvöld. Hiti 3 til 8 stig.
Það lægir í nótt og kólnar, sunnan 5-10 og rigning eða slydda síðdegis á morgun. Hiti 1 til 4 stig.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er mikið autt í Húnavatnssýslum en hálka bæði á Vatnsskarði og Þverárfjalli. Flughált er á fáeinum sveitavegum, s.s. á Reykjaströnd.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Sunnan og síðar suðvestanátt, 8-15 m/s og rigning eða slydda sunnan og vestantil en hægari og léttir til á NA-verðu landinu. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast á Austfjörðum.
Á sunnudag:
Suðaustlæg eða breytileg átt, 8-15 m/s. Rigning S-til og líkur á slyddu NV-til, en yfirleitt þurrt NA-lands. Hiti víða 1 til 6 stig.
Á mánudag:
Vaxandi suðaustan átt, 5-15 m/s, hvassast SV-til síðdegis. Fer að rigna S-til seint um kvöldið annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Breytileg átt og rigning eða slydda um mest allt land. Hiti 0 til 4 stig, en vægt frost til landsins.
Á miðvikudag:
Vaxandi suðaustanátt með úrkomu S- og V-til en úrkomulítið NA-lands fram eftir degi. Heldur hlýrra í bili.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir fremur svala sunnanátt með skúrum eða éljum um landið sunnanvert, en þurrt NA-til.