Hvetja sauðfjárbændur til að leita sér aðstoðar
Í kjölfar illviðrisins í gær er óttast um afdrif fjölda sauðfjár, einkanlega norðanlands, þar sem veðrið var hvað verst. Í mörgum tilvikum eru afréttir og önnur beitilönd ósmöluð, enda göngur og réttir í gangi fram eftir septembermánuði. Landssamtök sauðfjárbænda hvetja bændur til að leita sér aðstoðar við að gæta að fénu, eftir því sem þörf er á.
Bændur munu í dag hafa í nógu að snúast við að huga að fé sínu og koma því í skjól, bæði í heimalöndum og öðrum beitilöndum eftir því sem fært er. Björgunarsveitir hafa unnið að því með bændum bæði í gær og í dag.
„Víða er hinsvegar illfært eða ófært vegna snjóa, þó veðrið hafi gengið niður,“ segir í fréttatilkynningu frá Landssamtökum sauðfjárbænda en samtökin vilja hvetja bændur til leita sér aðstoðar við að gæta að fénu.
„Miklu skiptir að hægt sé að bjarga sem fyrst öllu því fé sem fennt hefur yfir, ekki síst ef snjóinn frá í gær tekur ekki upp aftur á næstu dögum,“ segir loks í tilkynningunni.