Hvetja til "borgaralegrar óhlýðni"

Samtök meðlagsgreiðenda vilja koma því á framfæri við fjölmiðla að samtökin hvetja einstæða umgengnisforeldra til borgarlegrar óhlíðni við útfyllingu skattaskýrslunnar fyrir árið 2013 með því að auðkenna sig sem einstæða foreldra við skráningu upplýsinga. 

Í skattaskýrslunni stendur skattborgurum til boða að auðkenna sig sem einstæða foreldra, vegna hvers kyns ívilnanna sem einstæðir foreldrar þiggja frá ríki og sveitafélögum.

Með þessum aðgerðum mótmæla Samtök meðlagsgreiðenda framgöngu hins opinbera gagnvart umgengnisforeldrum og stöðu þeirra gagnvart velferðarkerfinu.  Með þessu minnum við einnig á skráningarvandann sem birtist með þeim hætti að umgengnisforeldrar eru ekki auðkenndir í bókum hins opinbera og því ekki rannsóknarhæfur þjóðfélagshópur.

Að endingu viljum við með þessum aðgerðum minna á að einstæðir umgengnisforeldrar, eru einstæðir foreldrar, hvort heldur sem ríkið viðurkennir það eða ekki.

Fleiri fréttir