Hvítasunnuhret með snjókomu og kulda
Þriðjudaginn 8. maí komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar í því skini að huga að veðurhorfum í maí mánuði. Fundurinn hófst kl. 13:55 og voru fundarmenn tíu talsins sem fóru yfir sannleiksgildi síðustu spár og voru fundarmenn að vonum sæmilega ánægðir með hvernig til hefði tekist. Að vísu hafði veður verið heldur kaldara en ráð var fyrir gert, en spáin vel innan skekkjumarka eins og gjarnan er sagt um spár af hvaða tagi sem þær svo sem eru.
Nýtt tungl kviknar 15. maí kl. 11:48 í suðaustri og er það þriðjudagstungl. Gert er ráð fyrir að veður verði svipað og verið hefur undanfarið, þ.e. rysjótt og frekar kalt miðað við árstíma. Reikna má með hvítasunnuhreti með snjókomu og kulda. Vindáttir verða breytilegar og margt bendir til að sumarið verði frekar kalt, a.m.k. framan af. Ýmsar tilfinningar og draumar eru forsendur fyrir þessari veðurspá fyrir næsta mánuð og framtíðarlíkum, en nánar um það síðar. Fundi lauk síðan kl. 14:20
Veðurvísa mánaðarins
Í apríl sumrar aftur,
þá ómar söngur nýr.
Í maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.
Með góðri góðri kveðju, Veðurklúbburinn á Dalbæ
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.