Hvöt hlaut Grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA

Á 66. ársþingi Knattspyrnusambands Íslands sem haldið var um síðustu helgi voru veitt Grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum sem ákveðnir eru af UEFA. Þau þrjú félög sem hlutu þau voru Hvöt á Blönduósi, ÍBV og Víkingur Reykjavík.

Verðlaunin eru eftirfarandi:

  • Grasrótarviðburður ársins – Hvöt  fyrir Smábæjarleikana
  • Grasrótarviðburður stúlkna – ÍBV fyrir Pæjumótið
  • Grasrótarviðburður fatlaðra – Víkingur R fyrir Special Olympics og brautryðjendastarf í Unified knattspyrnu.

Fleiri fréttir