Í nógu að snúast hjá Björgunarsveitinni Strönd

Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga og farið í nokkur útköll en samkvæmt heimasíðu sveitarinnar voru fæst þeirra alvarleg og aðallega um aðstoðarbeiðnir að ræða.

Fimmtudaginn 26. janúar sl. var óskað eftir aðstoð við sjúkrabíll  sem þurfti að fara út á Skaga að sækja sjúkling. Vegna ófærðar komst sjúkrabíllinn frekar stutt og var sjúklingurinn sóttur á bíl sveitarinnar. Sjúklingurinn var ferjaður á Skagaströnd þar sem hann komst undir læknishendur.

Útkall vegna vélsleðaslyss skammt frá Hvammstanga barst sl. laugardag og voru sveitirnar á Skagaströnd og á Blönduósi voru ræstar til vonar og vara, þar sem mest af tækjum og mannskap Húna á Hvammstanga var á æfingu á Arnarvatnsheiði þegar slysið bar að. Húnarnir voru hinsvegar vel færir um að annast útkallið þar sem þeir voru á niðurleið af heiðinni og hinum sveitunum því snúið við.

Tómt bras og basl og lítil veiði

Í gær var óskað eftir aðstoð við að ná í bíl sem skilinn var eftir norðan við Steinnýjarstaði kvöldið áður. Tveir menn sem voru við veiðar á Langavatni höfðu fest bílinn sinn, affelgað hann og ákváðu að skilja hann eftir og fara til baka á öðrum bíl er þeir voru á.

„Var farið á Ford í þetta verkefni og ekki veitti af því töluvert krap var og lítill snjór.  Gríðarlega hafði tekið upp og þar sem bíllinn stóð var nánast engin snjór lengur bara krapi og mikill vatnselgur um allt. Farið var með auka dekk til að setja undir og  eftir smá bras við að tjakka bílinn upp þá komst dekkið undir og var þá haldið til baka og gekk það nokkuð vel. Þegar komið var til baka í hús var dekkinu komið á felguna aftur og undir bílinn og ætluðu ferðalangarnir svo að drífa sig í bæinn aftur eftir veiðiferð sem mestu var tómt bras og basl og litla veiði,“ segir á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Strönd.

 

Fleiri fréttir